Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 197 . mál.


366. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 78 23. desember 1980, um jöfnunargjald, sbr. lög nr. 108/1990.

(Eftir 2. umr., 21. des.)



1. gr.

    Í stað orðanna „31. desember 1991“ í 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna komi: 30. september 1992.

2. gr.

    2. gr. laga nr. 108/1990 falli brott.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1992.
    Frá og með 1. október 1992 falla lög nr. 78/1980, um jöfnunargjald, með síðari breytingum, úr gildi.